Tálgun og tónlistarsköpun í skógi

Staðsetning: Galtalækjarskógur, Bláskógabyggð - https://maps.app.goo.gl/8CzQwoYGeGrUS9eZA
Dagsetning 18.-21. júní 2024 + uppskeruhátíð 22. júní Tímasetning:  9-15:30  Fyrir krakka sem klára núna í vor 2.-7.bekk Verð:
38.000 - innifalið í verði er sérmerktur tálguhnífur í slíðri. Ath. hægt er að nýta frístundastyrk Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hrunamannahrepps og Bláskógarbyggðar. Frekari upplýsingar: Björk s. 6614580/ bjorkgunnb@gmail.com. Markús s. 6963553.


Skemmtilegt sumarnámskeið fyrir krakka þar sem þau fá að njóta þess að vera í skógi, skapa tónlist og tálga.

Björk mun leiðbeina krökkunum hvernig fara skal með tálguhníf, nýta efnivið skógarins og fræða þau um ýmislegt sem viðkemur skóginum. Farið verður í ratleik, eldað við opinn eld og notið þess að vera í skóginum.

Markús mun leiða trommuhringi með allskyns trommum og slagverki. Krakkarnir munu tálga sína eigin trommukjuða og búa til slagverkshljóðfæri úr nálægum efniviði. Farið verður í allskyns takt og tónlistarleiki. 

Galtalækur í Biskupstungum er staðsettur í stuttri fjarlægð frá og mitt á milli Reykholts og Flúða (milli Tungufljóts og Hvítár). Þar hefur verið stunduð nytjaskógrækt síðan árið 1988. Í skóginum er að finna ýmsar tegundir lauf- og barrtrjáa, berja, jurta og blóma. Þar búa einnig býflugur sem búa til dásamlegt skógarhunang.

Við lok námskeiðs laugardaginn 22. júní verður uppskeruhátíð þátttakenda, sýning og tónleikar fyrir vini og vandamenn. Að því loknu verður dagskrá á Galtalæk opin almenningi (auglýst síðar).

Um námskeiðshaldara: Björk Gunnbjörnsdóttir er hönnuður og kennari. Björk starfar sem kennari í hönnun og smíðum við Selásskóla ásamt því að kenna tálgun í Listaháskóla Íslands, stunda skógrækt og býflugnarækt.

Markús Bjarnason er tónlistarmaður og tónmenntakennari í Ingunnarskóla. Markús hefur haldið sumarnámskeið í tónlist, verið með fjölbreytt tónlistarstarf á frístundaheimilum Kringlumýrar og kennt tónlistarsmiðjur í ýmsum skólum, m.a. í grunnskólanum á Djúpavogi, Hjallastefnugrunnskólanum í Garðabæ og Öskjuhlíð. 


Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn barns *
Kennitala barns *
Nafn foreldris/forráðamanns *
Netfang *
Netfang endurtekið *
Símanúmer *
Annað sem er mikilvægt að koma á framfæri svo sem ofnæmi eða veikindi af einhverju tagi:
Skilmálar:
Mikilvægt er að börn komi klædd eftir veðri, með gott nesti og vatnsbrúsa. 

Ef svo óheppilega vill til að slys eigi sér stað hjá nemanda bendum við á heimilistryggingu forráðamanna barnsins og eru þeir hvattir til að kanna skilmála hennar. Með því að skrá barnið mitt á námskeiðið „Tálgun og tónlistarsköpun í skógi“ ber ég ábyrgð á slysum/tjóni sem hugsanlega getur orðið á einstaklingum, tækjum eða öðru vegna athafna eða framkomu sem eru andstæð reglum og leiðbeiningum sem gilda á námskeiðinu.

Ef lágmarks þátttaka næst ekki 7 dögum fyrir námskeið þá áskilja námskeiðshaldarar sér rétt að fella niður námskeiðið og þátttökugjald verður endurgreitt.

*
Required
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. - Terms of Service - Privacy Policy

Does this form look suspicious? Report