Ungt fólk og lýðræði 2022
Ungmennaráð UMFÍ undirbýr nú sína þrettándu ungmennaráðstefnu Ungt fólk og lýðræði 2022. Ráðstefnan fer fram dagana 9. - 11. september í Héraðsskólanum á Laugarvatni.

Yfirskrift ráðstefnunnar er Ungt fólk og lýðræði – Láttu drauminn rætast! 

Eins og nafnið ber með sér er ráðstefnan fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára. Engin skylda er að vera í ungmennaráði eða félagi. Allt ungt fólk á tilsettum aldri er velkomið! 

Markmið viðburðarins er gleði og þátttaka. Þátttakendur hljóta ýmis verkfæri og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif á sitt eigið líf sem og sitt nær samfélag. 

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi málstofur, samtal við ráðamenn, varðeldur og önnur skemmtilegheit. Sjá dagskrá á umfi.is. 

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 80 þátttakendur svo það borgar sig að bíða ekki of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði.

Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum. Skila þarf inn kvittunum til þess að fá styrk fyrir ferðakostnaði. 

Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni.  

Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur og nikótínpúða. 

Skráningafrestur er til miðvikudagsins 7. september. 

Sign in to Google to save your progress. Learn more
UPPLÝSINGAR
Þátttökugjald er 15.000 kr. á hvern einstakling. UMFÍ gefur út reikning að lokinni ráðstefnu.
Nafn greiðanda (hvert á að senda reikninginn fyrir þátttökugjaldinu)
Nafn þess sem tekur á móti reikningi
Kennitala greiðanda
UPPLÝSINGAR UM ÞÁTTTAKANDA / ÞÁTTTAKENDUR
1. Nafn þátttakanda *
Kennitala *
Netfang *
2. Nafn þátttakanda
Kennitala
Netfang
3. Nafn þátttakanda
Kennitala
Netfang
Nafn starfsmanns ef við á. ... starfsmaður þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára.
Kennitala starfsmanns
Netfang starfsmanns
OFNÆMI EÐA FÆÐUUPPLÝSINGAR
Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um fæðuóþol/ofnæmi sem og upplýsingar um hvort óskað sé eftir grænmetisfæði. 
Vinsamlegast tilgreinið upplýsingar ef við á um ofnæmi eða fæðuupplýsingar
STYRKUR VEGNA FERÐAKOSTNAÐAR
UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði fyrir þátttakendur. Skila þarf inn kvittunum til þess að hljóta styrk fyrir ferðakostnaði.
Gerir þú ráð fyrir að óska eftir styrk fyrir ferðakostnaði? *
Required
Ef já - hver er áætlaður ferðakostnaður? (ca. upphæð)
Annað sem þú vilt koma á framfæri?
Ungmennaráð UMFÍ þakkar þér fyrir skráninguna
Athygli er vakin á því að UMFÍ nýtir netföng sem skráð eru í umsókn til þess að koma á framfæri upplýsingum um viðburðinn. Með skráningunni gefa þátttakendur heimild fyrir því að nýta þær myndir og myndbönd sem kunna að vera teknar á viðburðinum og nýta þær í útgáfustarfsemi UMFÍ á hvaða formi sem það kann að vera.

UMFÍ tryggir ekki einstaklinga á viðburðinum.

Hægt er að hafa samband við Ragnheiði Sigurðardóttir, verkefnastjóra UMFÍ ef eitthvað er óljóst. Netfang: ragnheidur@umfi.is Sími 5682929. Einnig er hægt að hafa samband við Ungmennaráðið á netfanginu ungmennarad@umfi.is

Farið er með þær upplýsingar sem skráðar eru sem trúnaðarmál og þær meðhöndlaðar sem slíkar.
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy