Umsókn um dvöl í Batahúsi í Reykjavík
Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

HVAÐ ER BATAHÚS:
Batahús er vímuefnalaust áfangaheimili með félagslegum stuðningi og endurhæfingu.

HVER GETUR SÓTT UM:
          a) Þau sem hafa hlotið fangelsisdóma
          b) Þau sem eru (a) að ljúka afplánun (eru undir rafrænu eftirliti)
          c) Þau sem hafa lokið afplánun á síðastliðnum 12 mánuðum
          d) Þau sem eru að koma beint úr meðferðarúrræði
          e) Þau sem eru byrjuð að vinna í sínum málum, hafa vilja, getu og aðstöðu til að komast út úr
              afbrotahegðun og hætta að nota vímuefni

ATHUGIÐ: 
Þegar flutt er inn í Batahús þarf afplánun að vera lokið en þeim sem eru á reynslulausn er einnig boðið að sækja þar um dvöl. Til að koma í veg fyrir að bil myndist á milli þess tíma sem umsækjandi lýkur afplánun og flytur inn í Bathús, er mælt með því að sækja um með góðum fyrirvara og hægt er að gera það á meðan á afplánun stendur.

FRÁVÍSANIR:
Íbúar í Batahúsi geta verið með umgengni við börn sín í húsnæði Batahúss og því er úrræðið ekki fyrir þá einstaklinga sem hafa hlotið dóm fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum (þ.e. hafa brotið gegn almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og barnaverndarlögum).

UMSÓKN UM DVÖL
Vinsamlega fylltu út í reitina hér fyrir neðan og veldu „senda/submit“ neðst í forminu. Þá sendist skjalið sjálfkrafa inn til Batahúss.

Til að inntökuteymið hafi sem ítarlegastar upplýsingar og geti unnið af fagmennsku og gagnsæi er umsækjandi vinsamlegast beðinn að senda upplýsingar um gang sinna mála varðandi endurhæfingu á meðan á afplánun stóð/stendur.

Þegar umsókn um dvöl hefur borist fjallar inntökuteymi Batahúss um umsókn viðkomandi.
Sign in to Google to save your progress. Learn more
*
Clear selection
Next
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy