Hugmyndasmiðir kynna:
MEISTARABÚÐIR
Meistarabúðir er skapandi námskeið fyrir krakka sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum.
Á námskeiðinu læra þátttakendur:
- Hver eru stóru vandamálin sem tengjast umhverfismálum - Þema: Plastið í sjónum
- Hvernig við sækjum innblástur úr umhverfinu og nýtum í hugmyndavinnu
- Hvernig við vinnum saman að því að finna skapandi lausnir, útfæra þær og koma þeim í farveg
Hverjir: 10-11 ára krakkar
Hvenær: 19.-21. júní 2023 - kl 9:00-12:00
Hvar: Háskólinn í Reykjavík & Nauthólsvík
Verð: 15.000 kr
Samstarfsaðilar Meistarabúða eru Umhverfisstofnun, Brim, Háskólinn í Reykjavík, Vinnupallar & Blái herinn