3 á 3 streetball mót

Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa 26. ágúst

Laugardaginn 26. ágúst verður 3 á 3 Götukörfuboltamót haldið í Garðinum hans Gústa – glæsilegasta útikörfuboltavelli landsins – við Glerárskóla. Mótið er haldið í tengslum við Akureyrarvöku og er viðburðurinn styrktur af Akureyrarbæ.

Keppt verður í fjórum flokkum karla og kvenna: 13 ára og yngri, 15 ára og yngri, 25 ára og eldri og opnum flokki. Hvert lið fær a.m.k. þrjá leiki. Allir geta tekið þátt. Einn skiptimaður er leyfður (s.s. hámark 4 leikmenn í liði). Þaulvanir dómarar dæma.

Fyrstu leikir hefjast kl. 12:00. Leikjaniðurröðun verður birt daginn fyrir mót.

Auk sigurverðlauna í hverjum flokki verða veitt fjölbreytt verðlaun. Heitt verður á grillinu og plötusnúður verður á staðnum.

Skráning á mótið fer fram í gegnum netfangið 3a3Akureyri@gmail.com eða í gegnum skráningarhlekk. Það þarf að taka fram í tölvupósti nöfn liðs. Skráning þarf að berast eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmutdagins 24. ágúst. 

Þátttökugjald er 9.000 kr. á lið og greiðist á staðnum.

Fréttir og myndir frá mótinu munu birtast á Facebook-síðu Garðsins hans Gústa. Deilið sem víðast.

Hafið samband við Bjarka Oddsson (s. 821 4818) eða Guðmund Oddsson (s. 771 5707) ef spurningar vakna.

Email *
Nafn liðs

*
Flokkur *
Kyn *
Nafn fyrirliða liðs *
Nöfn annarra leikmanna *
A copy of your responses will be emailed to .
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy