Samfélagsskýrsla ársins - Tilnefningar
Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð auglýsa eftir tillögum um fyrirtæki eða stofnun sem hlýtur viðurkenningu fyrir Samfélagsskýrslu ársins 2020 (uppgjör ársins 2019).
 
Viðurkenningu fyrir samfélagsskýrslu ársins hlýtur fyrirtæki eða stofnun sem birtir upplýsingar um samfélagsábyrgð sína með markvissum, vönduðum og nútímalegum hætti í skýrslum sem geta verið í formi vefsíðna, rafrænna skjala eða öðrum hætti sem hentar þeim sem áhuga hafa, s.s. fjárfestar, viðskiptavinir, samstarfsaðilar, yfirvöld og/eða almenningur.

Dómnefnd  metur allar tillögur sem berast og getur einnig byggt val sitt á eigin frumkvæði.

Fyrirtækjum og stofnunum er frjálst að tilnefna eigin skýrslu.

Við mat á samfélagsskýrslu ársins er horft til eftirfarandi þátta:

- Fjallar skýrslan um samfélagsábyrgð og tekur hún bæði á félagslegum-, umhverfisþáttum og stjórnarháttum?

-  Hversu vel er fyrirtækið að fjalla um þætti sem teljast verða mikilvægir miðað við starfsemi fyrirtækisins (t.d. ef augljóst er að starfsemin raskar náttúrunni á tiltekinn hátt, er fyrirtækið með markmið um minna rask á því sviði)?

- Hefur fyrirtækið birt mælanleg markmið um samfélagsábyrgð og sjálfbærni í skýrslu sinni?

- Hefur fyrirtækið lagt mat á árangur sinn út frá settum markmiðum um samfélagábyrgð?

- Er jafnvægi milli þeirra jákvæðu upplýsinga sem fyrirtækið segir frá og þeirra áskorana sem það stendur frammi fyrir?

- Hefur fyrirtækið náð raunverulegum/mælanlegum árangri í starfi sínu?  (Er breyting milli ára t.d. dregið úr losun GHL, aukið kynjajanfrétti eða öðrum áskorunum samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni)

- Hefur fyrirtækið lagt sig fram við að kynna skýrsluna sína opinberlega?

Fresturinn til að senda inn tillögur rennur út þann 22.maí 2020

Viðurkenningin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 9.júní 2020 kl 12:00 á Nauthól. Skráning á viðburðin fer fram á heimasíðu Stjórnvísi.

Farið verður með nöfn þeirra sem tilnefna sem trúnaðarmál, eingöngu aðgengileg dómnefnd.

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Email *
Nafn fyrirtækis/stofnunar sem tilnefnt/d er *
Rökstuðningur fyrir tilnefningunni *
Nafn þess sem tilnefnir *
Farsímanúmer þess sem tilnefnir *
Slóð á samfélagsskýrsluna *
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
reCAPTCHA
This form was created inside of Festa - miðstöð um sjálfbærni. Report Abuse