Skyndihjálp fyrir laugar- og baðverði skólasundlauga
Þriðjudaginn 11. ágúst kl. 8:15-16 verður upprifjunarnámskeið í skyndihjálp fyrir baðverði og laugarverði í þeim skólum sem reka skólasundlaugar.

Í lok námskeiðsins verður hæfnispróf fyrir laugarverði. Samkvæmt reglugerð ber laugarvörðum að sækja skyndihjálparnámskeið og standast hæfnispróf árlega. Baðverðir eiga árlega að ljúka upprifjunarnámskeiði í skyndihjálp en þeir þurfa ekki að taka hæfnispróf.

Námskeiðið er árlegt skyldunámskeið fyrir baðverði og laugarverði sem hafa lokið hafa grunnfræðslu í skyndihjálp (16 stundir SKY 101) og sérhæfu laugarvarðarnámskeiði (8 kest).

Sótt verður um fyrir námskeiðskostnaði í starfsþróunarsjóð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar en miðað er við að skólarnir greiði það sem eftir stendur.

Leiðbeinandi er Oddur Eiríksson, skyndihjálparleiðbeinandi.

Námskeiðið fer fram í Laugardalslauginni. Þátttakendur þurfa að taka með sér sundföt því það er miðað við að allir fari í laugina, hvort sem þeir taka hæfnispróf eða ekki.
This form was created inside of Reykjavíkurborg. Report Abuse