KAI dómaranámskeið í kumite 2022
Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite fimmtudaginn 3.nóvember næstkomandi kl. 18:00, í Veislusal Breiðabliks í Smáranum, Kópavogi.

Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar og svo video dæmi af keppnum þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 5.nóvember á meðan GrandPrix-Bikarmót í kumite stendur yfir.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. 

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/)..

Vinsamlegast skráið mætingu, hvort sem það er einungis á fyrirlestur eða þá í próf.

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn *
Tölvupóstfang *
Ég mun sækja *
Félag *
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy