Hoppað í hnapphelduna á sumarsólstöðum
ÞVÍ MIÐUR ER UPPBÓKAÐ Á VIÐBURÐINN. EF ÞIÐ VILJIÐ VERA SKRÁÐ Á BIÐLISTA VINSAMLEGAST SENDIÐ PÓST Á ATHAFNIR@SIDMENNT.IS.

Föstudaginn 21. júní næstkomandi býður Siðmennt - félag siðrænna húmanista á Íslandi, kærustupörum að ganga í hjónaband í snarpri, merkingarþrunginni, hátíðlegri og síðast en ekki síst lögformlegri athöfn. Viðburðurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og er þetta í þriðja sinn sem Siðmennt heldur slíkan viðburð.

Til að hjónavígsla hafi lagalegt gildi þurfa hjónaefni að fá útgefið könnunarvottorð.
*Hjónaefni sem fædd eru á Íslandi og hafa lögheimili á Íslandi geta sótt um tilskilin vottorð í gegnum www.island.is.
*Hjónaefni sem ekki eru fædd á Íslandi og/eða eru ekki með lögheimili hér á landi geta fyllt út þetta eyðublað og sótt um tilskilin vottorð hjá Sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum á netfangið gifting@syslumenn.is (s. 458-2900).
*Könnunarvottorð má ekki vera eldra en 30 daga á vígsludegi.

Skráning
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig sem fyrst á meðfylgjandi formi. Staðfestingarpóstur verður sendur með þeim tíma sem pari hefur verið úthlutað.

Verð
Siðmennt tekur ekkert gjald fyrir hjónavígslur sem fara fram á þessum viðburði.
Ekki er nauðsynlegt að vera skráður félagi í Siðmennt en ef áhugi er fyrir hendi er auðvelt að velja til hvaða lífsskoðunarfélags sóknargjöldin þín renna á www.island.is

Annað
Athafnirnar taka um 20-30 mínútur hver.
Boðið verður upp á lifandi tónlist og fallegt umhverfi.
Gestir velkomnir.
Stundvísi er nauðsynleg.
Fyrirspurnir sendist á athafnir@sidmennt.is
Sign in to Google to save your progress. Learn more
ÞVÍ MIÐUR ER UPPBÓKAÐ Á VIÐBURÐINN. EF ÞIÐ VILJIÐ VERA SKRÁÐ Á BIÐLISTA VINSAMLEGAST SENDIÐ PÓST Á ATHAFNIR@SIDMENNT.IS.
Upplýsingar um þjónustuþega
Nafn hjónaefnis 1 *
Kennitala hjónaefnis 1 *
Nafn hjónaefnis 2 *
Kennitala hjónaefnis 2 *
Nafn tengiliðar (við hvort/hvora/hvorn ykkar eigum við að hafa samband)?
*
Netfang tengiliðar?
(Staðfestingarpóstur verður sendur með þeim tíma sem pari hefur verið úthlutað. Bókun telst ekki staðfest fyrr en sá póstur hefur verið sendur.)

*
Símanúmer tengiliðar?
*
Upplýsingar um athöfnina
Á hvaða tungumáli á athöfnin að vera? *
Ætlið þið að skiptast á hringum?
*
Viljið þið vera með eigin heityrði?
Heityrði eru stuttir textar frá hvoru um sig þar sem þið til dæmis getið lýst yfir ást ykkar eða væntingum ykkar og vonum með ykkar eigin orðum eða vísun í texta sem hefur þýðingu fyrir ykkur. Athugið að heityrði hvors um sig geta ekki tekið lengri tíma en mínútu í flutningi.
*
Hvaða lag viljið þið að verði flutt í athöfninni? *
Hvernig par eruð þið?
Ef þið viljið segja okkur frá ykkur sem pari er upplagt að gera það hér.
Hafið þið aðrar athugasemdir?
ÞVÍ MIÐUR ER UPPBÓKAÐ Á VIÐBURÐINN. EF ÞIÐ VILJIÐ VERA SKRÁÐ Á BIÐLISTA VINSAMLEGAST SENDIÐ PÓST Á ATHAFNIR@SIDMENNT.IS. 
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy