Ungmennabúðir á Laugarvatni eru ætlaðar nemendum í 9. bekk grunnskóla. Nemendur dvelja í búðunum frá mánudegi til föstudags.
Einungis skólastjórnendur grunnskóla geta bókað dvöl í Ungmennabúðum UMFÍ. Ætlast er til að uppistaða fararstjórateymis séu kennarar nemenda sem bókað er fyrir. Þegar sótt er um þarf að tilkynna hver verður aðalfararstjóri og ber ábyrgð á undirbúningi nemenda og fararstjórateymis.
Aðsókn í Ungmennabúðir UMFÍ hefur aukist mikið síðustu ár enda vinsælt að komast í heilbrigða hvíld þar sem m.a. farsímar og tölvur trufla ekki nemendur. Fyrirhyggja er því best og æskilegt að þeir sem vilja tryggja pláss hafi samband fyrr en seinna. Við munum að sjálfsögðu reyna að uppfylla óskir allra. Hingað til hefur verið eftirsóknaverðast að óska eftir dvöl í september og október. Því miður er ekki hægt að veita öllum skólum dvöl á þeim tíma.
Pláss er fyrir 75 nemendur í senn ef um fleiri en einn skóla er að ræða, en ef um einn skóla er að ræða getum við bókað allt að 85-90 nemendur.
Þeir skólar sem óska eftir að bóka tímanlega og geta valið úr öllum vikum verða að sækja um fyrir 21. febrúar 2021 og verður skólum svarað í síðasta lagi í byrjun apríl. Þeir sem hafa samband eftir 22. febrúar raðast á þær vikur sem eftir verða.
Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Tómasdóttir, Sími: 861-2660. Netfang:
ungmennabudir@umfi.is