Ábyrgðaryfirlýsing Klifurhússins
Sign in to Google to save your progress. Learn more

Ábyrgðaryfirlýsing

Takmörkun ábyrgðar í Klifurhúsinu.

Hér með staðfestist að ég hef kynnt mér, á fullnægjandi hátt eftirfarandi reglur vegna viðveru minnar í Klifurhúsinu, (rekstraraðili Klifurfélag Reykjavíkur, kt. 4103023810) að Ármúla 23, 108 Reykjavík (hér eftir Klifurhúsið”)


Allir eru á eigin ábyrgð í Klifurhúsinu. Viðvera mín innan Klifurhússins (þ.m.t. á lóð Klifurhússins) er alfarið á mína ábyrgð og mína áhættu. Ég mun fara með ítrustu gát um svæðið, fyrir mig persónulega og aðra gesti svæðisins. Ég geri mér grein fyrir því að hugsanleg ábyrgð Klifurhússins gagnvart mér getur eingöngu byggst á saknæmri háttsemi starfsmanna Klifurhússins. Ég geri mér grein fyrir því að forráðamenn eru ábyrgir fyrir börnum á þeirra vegum.

Reglur og öryggisatriði. Ég staðfesti að ég hafi kynnt mér reglur og öryggisatriði Klifurhússins og aðra mikilvæga þætti áður en ég nota aðstöðu Klifurhússins. Ég staðfesti að ég muni fara eftir þeim leiðbeiningum, í hvívetna, sem starfsmenn Klifurhússins munu koma til með að færa mér eða eru mér sýnilegar innan veggja Klifurhússins.

Brot á reglum. Ég staðfesti að mér er kunnugt um að starfsmenn áskilja sér þann rétt að vísa mér á brott, án endurgjalds ef ég verð uppvís um brot á reglum Klifurhússins eða annari ámælisverðri hegðun.

Umferð um dýnur skal halda í lágmarki. Ég staðfesti hér að mér er kunnugt um að stranglega bannað sé að hoppa, hlaupa og hvíla sig á dýnunum. Ég gæti þess sérstaklega að standa ekki undir klifrurum þar sem þeir geta dottið fyrirvaralaust og erfitt er að spá fyrir um lendingarstað. Ég gæti þess einnig aðeins stíga á dýnur þegar gengið er að klifurleið, að öðrum kosti skal bíða fyrir utan þær.

Ábyrgð á eigin munum. Ég samþykki að ég beri ábyrgð á persónulegum munum mínum innan veggja Klifurhússins, svo sem símum, veskjum og öðrum lausafjármunum.

Staðfesting. Með undirritun minni (foreldrar eða ábyrgðaraðilar í tilviki barna), veiti ég samþykki mitt og staðfestingu á yfirlýsingu þessari. Yfirlýsing þessi er einungis til notkunar fyrir Klifurhúsið, gætt verður trúnaðar um hana og hún ekki afhent 3. aðila nema að undangengnum dómi eða lagaboði. Vistun og meðferð upplýsinga þessa fer eftir gildandi lögum um persónuvernd.


Ég staðfesti hér með að ég hef lesið og skilið ábyrgðaryfirlýsingu þessa. Ábyrgðaryfirlýsing þessi er ótímabundin.

*aðeins ef það á við

Full nafn *
Kennitala *
Nafniđ hjá barni
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This form was created inside of Klifurfélag Reykjavíkur. Report Abuse