Handboltadeildin ætlar að standa fyrir glæsilegu námskeiði fyrir iðkendur og byrjendur í handboltaíþróttinni í dymbilvikunni. Námskeiðið verður alveg ÓKEYPIS og verður það haldið dagana 15. - 17.apríl.
Námskeiðið fer fram í Fjölnishöllinni okkar í Egilshöll (nýja íþróttahúsið okkar) á eftirfarandi tímum:
1. og 2. bekkur
15. - 17.apríl kl. 09:00-10:15
3. og 4. bekkur
15. - 17.apríl kl. 10:30-11:45
Farið verður í grunnþætti íþróttarinnar og leikir og skemmtun höfð að leiðarljósi. Skemmtileg tónlist verður spiluð og þjálfarar deildarinnar munu leiðbeina og aðstoða unga iðkendur. Við hlökkum til að sjá ykkur í páskaskapi á þessum tíma!
*Mælst er til þess að iðkendur mæti í íþróttafötum, í íþróttaskóm og með vatnsbrúsa.
Eina sem þarf að gera er að skrá barnið hér á listann og mæta á staðinn!
Tenging við deildina er hér:
Heimasíða:
http://fjolnir.is/handboltiFacebook:
https://www.facebook.com/fjolnirhkd/ Instagram:
https://www.instagram.com/fjolnirhkd/ með Fjölniskveðju,
Barna- og unglingaráð hkd. Fjölnis