Símamótið 2024, 11.-14. júlí 
Stelpumót í 5., 6., 7. og 8. flokki(sjá varðandi 8.flokk-Litla Símamótið hérna neðst)

Skráningarfrestur er til og með 22. apríl 
Svo að skráning teljist gild þarf að vera búið að fylla út þetta form og greiða Staðfestingargjald Liða sem er 11.700kr fyrir hvert lið sem gistir ekki og 23.000kr fyrir hvert lið sem gistir.

Þann 22. maí þarf svo að vera búið að greiða fyrir nákvæman fjölda leikmanna(Þátttökugjald Einstaklinga).
11.700kr skal greitt fyrir hvern leikmann án gistingar og 20.400kr með gistingu.


Allar greiðslur skulu lagðar hér inn:
Kennitala: 410284-1389
Reikningsnúmer: 0130-26-410047
ATH: Mikilvægt er að láta skýringu fylgja með hverri greiðslu um hvaða flokkur og félag um er að ræða ásamt því hversu mörg lið/leikmenn verið er að greiða fyrir og með eða án gistingar.


Innifalið í gjöldum þeirra sem gista ekki eru kappleikir í þrjá daga(fös, lau og sun), Símamótsgjöfin, setningarathöfn, kvöldskemmtun(6., 7. og 8.fl) / bíó(5.fl), grillveisla, skrúðganga og sundferð.
Innifalið í gjöldum þeirra sem gista er allt hér að ofan plús gisting í þrjár nætur í skóla, 3x morgunmatur, 2x kvöldmatur.
Reiknað er með einum liðsstjóra per lið og ekki þarf að borga aukalega fyrir þann aðila heldur er matur+gisting innifalið gegn framvísun armbands.




Litla Símamótið - 8. flokkur kvenna
Okkar allra yngstu stelpur fá sitt eigið dagsmót laugardaginn 13. júlí inni í Fífunni.
Þátttökugjaldið í 8.fl er 2.500kr per stelpu og skal það lagt inn á sama reikning og er hér að ofan fyrir 30. júní.
Innifalið í því gjaldi eru keppnisleikir, Símamótsgjöf(öðruvísi en sú sem eldri fá), setningarathöfn, kvöldskemmtun, grillveisla, skrúðganga.

Hlökkum til að sjá ykkur!





Sign in to Google to save your progress. Learn more
Félag
Flokkur
Clear selection
Fjöldi liða - haft verður samband þegar nær dregur varðandi styrkleikaröðun eins og undanfarin ár.
Fjöldi liða í gistingu
Nafn þjálfara
Símanúmer þjálfara
Netfang þjálfara
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy