Boðið er upp á morgunvistun í Barnaskólanum frá kl. 7:30-8:00.
Um er að ræða sameiginlega morgunopnun inni á 5 ára kjörnum þar sem boðið er upp á hafragraut og rólega stund. Starfskraftur tekur á móti börnum í norðurenda hússins og er til staðar fyrir þau.
Verð fyrir dvalargjald í
morgunvistun er samkvæmt gjaldskrá skólans 2.600kr fyrir hvern mánuð.Skráning gildir út skólaárið nema plássi í morgunvistun sé sagt upp með tölvupósti á barnaskolinnhfj@hjalli.is.
Uppsögn gildir frá næstu mánaðamótum eftir að hún berst.
Skólinn opnar kl. 8:00 fyrir börn sem ekki eru skráð í morgunvistun.