Staðsetning: Salur Listasafns Ísafjarðar, Safnahúsinu Eyrartúni, önnur hæð til vinstri.
Listasafn Ísafjarðar heldur utan um listasmiðjur í tengslum við haustsýningu safnsins. Safnið leggur sérstaka áherslu á að standa fyrir skemmtilegri fræðsludagskrá fyrir börn og unglinga þar sem markmiðið er að efla áhuga og auka þekkingu nemenda og almennings á menningu og listum.
Börn og unglingar á grunnskólaaldri fá tækifæri til að vinna undir leiðsögn menntaðra listamanna og fá fræðslu frá listamönnum sýningarinnar. Áhersla er lögð á að þau sæki innblástur og túlki á sinn hátt sýningu safnsins og setja að lokum upp sýningu á gangi Safnahússins.
Fræðsludagskráin er öllum að kostnaðarlausu.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði, Myndlistarsjóði og Orkubúi Vestfjarða