Skráning í siðfestu 2021 (heiðin ferming)
Siðfræðsla eru valkostur fyrir ungmenni sem og fullorðna sem vilja dýpka skilning sinn á heiðnum sið. Þar sem um einstaklingsathafnir er að ræða eru staður og stund ákveðin af siðfestubarni, foreldrum og goða hverju sinni.
Vegna COVID-19 mun fræðslan fara fram í netheimum.
Í fræðslunni er farið yfir megininntak og siðfræði heiðins siðar: Ábyrgð einstaklingsins á sjálfum sér; Heiðarleiki; Umburðarlyndi gagnvart trú og lífsskoðunum annarra; Virðing fyrir náttúrunni og öllu lífi.
Einnig er fræðst um goðafræðina, heimsmyndina og helstu heiðin tákn, byggt á Eddukvæðum og Snorra-Eddu.
Bent er á að einnig má sækja fræðslu í til goða í héraði samkvæmt samkomulagi.
Foreldrar og forráðamenn eru velkomin til að sitja námskeiðið með börnum sínum en gert er ráð fyrir því að þeir mæti í fyrsta tímann og í síðasta tímann, sem fer fram í maí.
Verð fyrir fræðsluna og siðfestuna er 30.000kr. Innifalið í verði er námskeið, hópefli og einstaklingsathöfn.