Skráning í fjöruhlaup - hefst kl. 15 á planinu við smábátahöfnina
Vegalengdirnar eru tvær, 3 km. og 8 km. og sú/sá sem hleypur hvora vegalengd fyrir sig á besta tímanum fær 15.000 kr. gjafakort frá Stúdíó Sport á Selfossi!
Björgunarsveitin Mannbjörg sér um tímatöku og að vísa réttu leiðirnar og við minnum á að hægt er að kaupa vöfflur og kaffi í húsnæði þeirra þennan dag á milli kl. 12-17 og styðja í leiðinni við þeirra góða starf.
Þátttakendur mæti í síðasta lagi kl. 14.45. Allir geta skráð sig óháð aldri.