Á taumgöngunámskeiði Hundalífstíls er lögð áhersla á að kenna leiðbeinendum hunda merkjamál til að aðstoða þá að vinna úr þeim tilfinningavanda sem þeir geta hafa þróað með sér. Einbeitum okkur að því að vinna frá þeim stað, þar sem hundinum líður vel, og vinna okkur jafnt og þétt í að hann geti betur tekist á við lífið. Hvolpaeigendur eða þeir sem telja hundinn sinn ekki sína nein einkenni streitu: Þá er námskeiðið fyrirbyggjandi, styrkir tengslin, eykur skilninginn, drögum úr togi og notum jafnvel meira af jákvæðri styrkingu ef hundurinn ræður við. Notast er við 5-10 metra taum (ekki teygjanlegan/flexy) með aðaláherslu á atferlisfræði (RIE-Líkt) og aukalega jákvæða styrkingu fyrir þá hunda sem þurfa og þola slíka þjálfun. Við notumst ekki við tog/kippi, munnlegar refsingar eða neinskonar refsingar af nokkurs konar tagi. **** Þau sem eru að koma úr gömlu aðferðunum (refsingum), engar áhyggjur ! Við förum saman yfir hvað við gerum í staðinn ! **** Vitandi áherslur námskeiðsins. Hefur þú áhuga á að skrá þig? *