Vorskemmtun Grenivíkurskóla 2021 - miðasala
Vorskemmtun Grenivíkurskóla hefur til fjölda ára verið metnaðarfull sýning sem laðað hefur að fjölmarga áhorfendur. Í ljósi heimsfaraldurs og sóttvarnartakmarkana var ekki hægt að bjóða áhorfendum þetta árið en í staðinn var ákveðið að taka sýninguna upp og koma henni til skila til áhorfenda með rafrænum hætti.

Vorskemmtun skólans hefur verið ein stærsta tekjulind ferðasjóðsins ár hvert og því verður farin sú leið í ár að bjóða fjölskyldum og sveitungum öllum að kaupa rafrænan Vorskemmtunarmiða sem inniheldur fallega leikskrá ásamt slóðum á myndband af sýningunni og ljósmyndaalbúm.

Miðinn kostar kr. 1.500 og er velkomið að kaupa fleiri en einn miða ef fólk vill styrkja ferðasjóðinn aukalega.

Andvirði miðanna skal leggja inn á reikning ferðasjóðs 1187-26-713 kt. 450619-0510

Hafir þú áhuga á að sjá sýningu nemenda og kaupa rafrænan miða á Vorskemmtunina, ertu vinsamlegast beðin/beðinn um að skrá viðeigandi upplýsingar hér fyrir neðan. MIKILVÆGT ER að NETFANG sé rétt skráð og þegar greiðsla hefur borist ferðasjóði, verður leikskráin með slóð á sýninguna og ljósmyndaalbúmin, send á skráð netfang. Hægt verður að kaupa miða hvenær sem er fram á vor.

Við hvetjum ykkur til að búa til viðburð heima þar sem allir koma sér vel fyrir á formlegri Vorskemmtunar-bíósýningu með sínum börnum.
Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn *
Netfang *
Hversu marga miða viltu kaupa? *
Ég staðfesti að netfang er rétt skráð og að ég mun - eða hef nú þegar - lagt inn á reikning ferðasjóðs fyrir andvirði þeirra miða sem ég kaupi. *
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This form was created inside of Grenivíkurskóli. Report Abuse