Samtal ungmennaráða
Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir rafræna viðburðinum Samtal ungmennaráða fimmtudaginn 8. apríl næstkomandi á milli klukkan 19:30 – 21:30.

Markmið viðburðarins er að búa til vettvang þar sem fulltrúar ýmissa ungmennaráða geta hist, deilt hugmyndum, ólíkri reynslu sinni og rætt saman á óformlegan hátt. Við vonum að eftir viðburðinn hafi fulltrúar ungmennaráðanna deilt upplýsingum sín á milli um það sem gengur vel í starfi þeirra, hvað megi fara betur og hverjar helstu áskoranirnar eru. Við þurfum nefnilega ekki að finna hjólið upp hvert í sínu horni. Það er miklu
betra að gera það saman.
 
Fyrirkomulag viðburðarins: Þátttakendum verður skipt upp í hópa til þess að sem flestir fái tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum á framfæri. Planið er að umræðuhóparnir rúlli í gegnum fjórar umræðulotur. Að þeim loknum koma svo allir hóparnir saman á einum vettvangi.

Dæmi um umræðuefni: Hverju vilt þú áorka sem fulltrúi í ungmennaráði? Hvað eru margir í ungmennaráðinu? Leitar sveitarfélagið til ungmennaráðsins? Eru þið búin að skipuleggja eitthvað sérstakt í COVID-faraldrinum? Eru einhverjir viðburðir framundan?

Við hvetjum ungmennaráð til þess að skrá a.m.k. tvo fulltrúa til þátttöku í rafræna viðburðinum.

Skráning fer fram hér.

Viðburðurinn er í samráði við Samband íslenska sveitarfélaga. Við í Ungmennaráði UMFÍ munum taka saman upplýsingar frá viðburðinum og senda til stjórnar sambandsins. Einnig munum við birta myndir og upplýsingar um fundinn og mögulegan árangur af honum á samfélagsmiðlum.  

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn *
Netfang *
Kennitala *
Frá hvaða ungmennaráði kemur þú? *
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Ef þú ert með einhverjar spurningar þá eru þær velkomnar á netfangið ragnheidur@umfi.is 
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy