Vesturland - samráðsfundur um stöðu samgöngumála
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Vesturlandi miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00-17:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála.
Skráningu lýkur kl. 13:00 miðvikudaginn 3. mars. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.