Stórferð Ferðaklúbbsins 4x4 2020
Uppfært 12. desember 2019:  Vegna mikillar þátttöku í ferðina er uppselt í matinn á laugardagskvöldinu. Gistipláss er líka orðið lítið og þarf nú að vinna úr þeim sem búin eru að skrá sig. Þeir sem skrá sig núna fara á biðlista og verða látnir vita um leið og það losnar.  

Í ár verður farið á Mývatn og hefst ferðin á Mývatni föstudagsmorgun 20 mars og endar á laugardagskvöldinu með húllum hæ í félagsheimilinu Skjólbrekku á Mývatni.

Dagskráin er hefðbundin:
Föstudagur: Hittingur þar sem farið verður yfir leiðarval dagsins með norðanmönnum.  
Leiðin verður valin eftir snjóalögum og veðri. Þetta er stóri ferðadagurinn þannig að gott er að nesta sig vel.

Laugardagur: Hittingur eins og á föstudeginum og farið yfir þær leiðir sem verða í boði. Á þessum degi verður ekið styttra en á föstudeginum eða til ca. 16:00
Hittingur í félagsheimilinu er ca. kl. 19:00. Matseðillin verður ekki af verra endanum.

Á meðan á borðhald stendur, verður boðið upp á skemmtiatriði sem öll verða heimatilbúin.
Reiknað er með að nú muni stíga á stokk nýtt band sem mun spila ný og gömul lög og fá salinn til að syngja með. Vonandi mætir okkar frábæri uppistandari og að mér skilst ætla norðanmenn að koma okkur á óvart.

Sunnudagurinn er heimferðardagur og ekkert skipulagður. Fólk ræður því hvaða leið það fer til síns heima.

Gjaldið í ferðina er 7.000,- á mann innifalið er skemmtunin á laugardagskvölsinu, matur, kaffi + kleinur og félagsheimilið Skjólgarði.   Auk þess verða prentaðir límmiðar fyrir þá sem taka þátt í ferðinni.
Greiðslan kr. 3.500,- á mann þarf til að tryggja gistirými (á meðan gistirými leyfir). Upphæðina þarf að leggja inn á reikning klúbbsins nr. 0133-26-14444, kt. 701089-1549. Sú greiðsla er óafturkræf.
 
Lokagreiðslan kr. 3.500,-  þarf síðan að vera komin inn fyrir 1. mars 2020. Greiðslur fyrir gistingu eru innheimtar af hótelinu og er algjörlega á ábyrgð hvers og eins.  Verð á nóttu fyrir mannin er frá 6.000,-  - 10.000,- sjá verðskrá á hótelgistingu sem er á vef félagsins, f4x4.is undir spjallþræði Stórferð 2020.

Eina skilyrðið fyrir þátttöku í ferðinni er að einn aðili í bíl sé greiddur félagi í Ferðaklúbbnum 4x4.

Ath. Selhótel er frátekið fyrir þá sem þátt taka í ferðinni þannig að gistiskráning fer í gegnum okkur. Munið að skrá ykkur í réttann hóp svo hægt verði að skipuleggja allt mjög vel.

Þau sem þátt taka í ferðinni velja sér sjálf hvaða leið valin verður en algjört skilyrði er að ef einhverjir ætla yfir hálendið þá verða þeir að vera í  hóp með sínum ferðafélögum, ekki ætlast til að nóg sé af öðrum bílum til að hjálpa.

Meiri upplýsingar koma þegar nær dregur, auk þess að við munum senda upplýsingar á uppgefin netföng þannig að hafið þau endilega rétt.

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Úr Stórferð á Mývatn
Nafn *
Nafn þátttakanda
Félagsnúmer *
Félagsnúmer á formi Annn þar sem A er bókstafur og nnn er númer
Heiti hóps *
Heiti ferðahóps
Hópstjóri *
Er þetta hópstjóri sem er verið að skrá?
Nafn farþega
Nafn á farþega, ef fleiri en einn þá koma öll nöfnin með kommu á milli
GSM *
GSM símanúmer, hver bíll verður að hafa eitt númer
Tölvupóstur *
E-mail á formi x@lén
Bíltegund *
Tegund bíls, dæmi: Toyota hilux
Dekkjastærð *
Dekkjastærð í tommum, dæmi: 44
Bílnúmer *
Númerið á bílnum
Hótelgisting
Þeir sem ætla að fá gistingu á Hótel Mývatn (Selhótel) panta hér. Athugið að þeir sem panta 3 nætur hafa forgang ef herbergin klárast. Athugið að ekki á að velja fleiri en einn dálk, en ef fleiri dálkar eru valdir þá er dálkur með flestar nætur sem ræður.
Fim-Sun (3 nætur)
Fös-Sun (2 nætur)
Lau-Sun (1 nótt)
1 manns
2 manna
3+ manna
Athugasemdir
Hér er hægt að koma á færi upplýsingum sem rúmast ekki í svörunum að ofan. Dæmi ef það eru fleiri en 2 í herbergi, þá þarf að setja fjöldann hér. Eins þeir sem eru með fæðuofnæmi eða á sérfæði sem þarf að taka tillit til. Haft verður samband við þá sem eru með fæðuofnæmi eða sérfæði.
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This form was created inside of tolvu.net. Report Abuse