Skuggaráðuneyti er vettvangur þar sem meðlimir SUF fá að hitta ráðherra Framsóknarflokksins og kynnast störfum þeirra. Þeir sem taka þátt í fundinum fá líka tækifæri til þess að spyrja ráðherra spurninga bæði formlega og óformlega.
Að þessu sinni fer skuggaráðuneytið fram á Zoom og verður hlekkur sendur á netfang þeirra sem skrá sig.
Þau sem eru skráð í Framsókn og eru yngri en 35 ára eru sjálfkrafa meðlimir í SUF.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er hægt að senda á
suf@suf.is eða skilaboð á facebook síðu Sambands ungra Framsóknarmanna.