Heldurðu þræði: Skrá mig // Registration

,,Heldurðu þræði?” - Nýsköpunarnámskeið fyrir frumkvöðla í textíl vorið 2023

Háskóli Íslands í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands býður upp á nýsköpunarnámskeið sem tengist textílvinnslu. Námskeiðið nefnist „Heldurðu þræði?“ og hefst 7. febrúar. Námskeiðið er hugsað fyrir þau sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur með áherslu á textíl eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í tengslum við evrópska rannsókna- og þróunarverkefnið CENTRINNO sem námsbraut í kynjafræði við Háskóla Íslands og Textílmiðstöð Íslands taka þátt í. Námskeiðið er endurgjaldslaust. 

Þetta er í annað sinn sem námskeiðið er haldið, en það var líka í boði á síðasta misseri og voru þátttakendur um 30 talsins. 

Þátttakendur fá margháttaðan stuðning og fræðslu á námskeiðinu, m.a. við að búa til heildstæða viðskiptaáætlun í kringum hugmyndir sínar. Þar verður einnig farið yfir stefnumótun, stjórnun og starfsmannamál, markaðssetningu og hagnýtingu samfélagsmiðla til að koma vörum sínum á framfæri en jafnframt er boðið upp á fræðslu um hringrásarhagkerfið, jafnréttisáherslur og umhverfismál.

Námskeiðið stendur yfir í níu vikur og lýkur með heimsókn í TextílLabið á Blönduósi. Kennt verður í fjarnámi á þriðjudögum klukkan 13:30 - 15:00. Kennslan er tekin upp og þau sem skrá sig geta fengið aðgang að upptökunum. 

Hægt er að taka þátt í einni eða fleirum af eftirfarandi vinnustofum: 

1. Kynning á verkefninu, viðskiptaáætlun

2. Viðskiptaþróun, viðskiptahugmynd

3. Umhverfismál, hringrásarhagkerfið, heimsmarkmið SÞ

4. Markaðsmál og samkeppnisgreining

5. Frumkvöðlaumhverfið og viðskiptaáætlanir

6. Markaðsmál á vefnum og samfélagsmiðlum 

7. Fjárhagur og stofnun fyrirtækja

8. Kynningar á verkefnum fyrir fjárfesta (pitch), styrkir, umsóknir 

9. Dómarakynningar, dæmt verður eftir nýnæmi, fýsileika og teymi 

10. Heimsókn í Textíllabið á Blönduósi (kynning á tækjum) 


Facebook-síða námskeiðsins hér. Nánari upplýsingar veitir Hulda Birna Baldursdóttir, netfang: centrinno@hi.is, hbkb@hi.is 

Nýsköpunarnámskeiðið tengist Evrópuverkefninu CENTRINNO (New CENTRalities in INdustrial areas and engines for inNOvation and urban transformation) sem Háskóli Íslands og Textílmiðstöð Íslands taka þátt í ásamt stofnunum og fyrirtækjum í 9 löndum. Hjá Háskóla Íslands koma þær Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði, Laufey Axelsdóttir, nýdoktor í sömu grein, og Hulda Birna Baldursdóttir verkefnastjóri í  verkefninu.

Markmið CENTRINNO er að endurvekja hnignandi en menningarsögulega mikilvæg iðnaðarsvæði í Evrópu þar sem störfum hefur fækkað og umhverfi er á fallanda fæti. Áhersla er m.a. lögð á textíl í verkefninu og í tengslum við það er unnið að því að koma nýsköpunar- og þekkingarmiðstöðvum á fót í Amsterdam, Barcelona, Genf, Kaupmannahöfn, Mílanó, París, Tallinn, Zagreb og á Blönduósi. Þar verður menningararfur nýttur sem hvati fyrir nýsköpun og félagslega þátttöku í anda hringrásarhagkerfis og sjálfbærni.


Vefsíða CENTRINNO: https://centrinno.eu/


Sign in to Google to save your progress. Learn more
Email *
Next
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy