Skráning í siðfestu 2020 (heiðin ferming)
Siðfræðsla eru valkostur fyrir ungmenni sem og fullorðna sem vilja dýpka skilning sinn á heiðnum sið. Þar sem um einstaklingsathafnir er að ræða eru staður og stund ákveðin af siðfestubarni, foreldrum og goða hverju sinni.

Fræðsla vetrarins 2019-2020 fer fram í sal Ásatrúarfélagsins að Síðumúla 15.
Farið er yfir megininntak og siðfræði heiðins siðar: Ábyrgð einstaklingsins á sjálfum sér; Heiðarleiki; Umburðarlyndi gagnvart trú og lífsskoðunum annarra; Virðing fyrir náttúrunni og öllu lífi. Einnig er fræðst um goðafræðina, heimsmyndina og helstu heiðin tákn, byggt á Eddukvæðum og Snorra-Eddu.
Dagskrá vetrarins eftirfarandi (með fyrirvara um breytingar):

28. sept: Kynning á siðfestu og fræðslunni
26. okt: (Fyrsti vetrardagur)
30. nóv heimspeki
Deseber: nemedur sækja blót að eigin vali
25. jan: Virðing
29. feb: (Hlaupársdagur) ábyrgð
29. mars: Viska og kynfræðsla
25. apríl: Samband okkar við náttúruna
30. maí: Hópefli við Mógilsá
 
Einnig má sækja fræðslu í til goða í héraði samkvæmt samkomulagi.

Foreldrar og forráðamenn eru velkomin til að sitja námskeiðið með börnum sínum en gert er ráð fyrir því að þeir mæti í fyrsta tímann og í síðasta tímann sem fer fram í maí.

Verð er 30.000kr innifalið er námskeið, hópefli og einstaklingsathöfn

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn siðfestubarns *
Nafn foreldris *
Nafn foreldris
Tölvpóstur *
Nafn og kennitala þess sem greiðir reikning. ATH reikningur verður sendur í heimabanka viðkomandi *
Greiðslumöguleikar *
Annað sem þarf að koma fram
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy