Farskóli FÍSOS 2022 - Söfn á tímamótum
Við bjóðum ykkur velkomin á næsta Farskóla FÍSOS sem haldinn verður á Hótel Hallormsstað dagana 21.-23. september 2022. Boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra, spennandi málstofur, skemmtilegar skoðunarferðir, fjörugar skemmtanir og síðast en ekki síst stórkostlega árshátíð.

Við biðjum ykkur að skrá ykkur á Farskólann með því að fylla út meðfylgjandi skráningarform. Jafnframt biðjum við ykkur um að velja ykkur málstofur.

Málstofur verða þrisvar á dagskrá og hægt er að velja úr fjórum í hvert sinni. Við biðjum ykkur um að velja alltaf eina málstofu og eina til vara. Nánari upplýsingar um málstofurnar má finna hér:

Farskólagjöld eru 25.000 kr. fyrir félagsmenn í FÍSOS en 35.000 kr. fyrir aðra. Innifalið eru hádegis- og kvöldmatur á miðvikudegi, hádegis- og hátíðarkvöldverður á fimmtudegi og hádegisverður á föstudegi auk morgun- og síðdegishressinga á meðan ráðstefnu stendur. Morgunverður er innifalinn í verði fyrir gistingu.

Athugið að skráning á Farskólann er bindandi. Ef skráður þátttakandi hættir við eftir 31. ágúst greiðist fullt skráningargjald.  

Boðið verður upp á rútuferð frá flugvelli inn í Hallormsstað í tengslum við vélina sem á að lenda á Egilsstöðum á miðvikudagsmorgni kl. 8:30. Einnig verður boðið upp á rútuferð út á flugvöll í veg fyrir vélina sem á að fara til Reykjavíkur kl. 19:25 á föstudagskvöldinu.

Við minnum á að farskólagestir sjá sjálfir um að bóka gistingu. Til að gera það er best að senda póst á netfangið heidrun@701hotels.is

ATH: Við ítrekum að mælst er til þess að sem allra flestir deili herbergi með öðrum svo hægt sé að tryggja að allir fái svefnpláss á hótelinu.

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Email *
Next
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy