Hönnuðir, hugmyndasmiðir og aðrir skaparar athugið
Ef þú ert með hugmynd að vöru sem þú vilt þróa og koma á framfæri þá er tækifæri fyrir þig í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum. Þar geturðu nýtt þér tölvustýrð tæki og tól til þess að gera frumgerðir að vörum og þróa vöruna þína til framleiðslu og markaðssetningar.
Í boði verður handleiðsla og aðgengi að Fab Lab smiðjunni í allt að 12 mánuði ásamt námskeiðum og vinnubúðum.
Nánari upplýsingar má finna á
https://fablab.is/ddp/ Þú getur sótt um þátttöku hér á þessu eyðublaði.
Vinnustofan verður haldin í nóvember 2023 og í Fab Lab smiðjunni á 3. hæð á Ægisgötu 2.
Fab Lab smiðjan er þátttakandi í Distributed Design verkefninu sem er stutt af Creative Europe áætlun Evrópusambandsins.
Í Fab Lab smiðjunni í Eyjum er ýmis konar tækjabúnaður eins laserskeri, vinylskeri, vinylprentari, hitapressa, ofn, mótagerðaraðstaða, rafeindaverkstæði, fínfræsivél, stór fræsivél, þrívíddarprentarar, þrívíddarskanni o.fl. o.fl. sjá nánar á
https://fablab.is/taekjabunadur/