Skákþing Garðabæjar 2021


Skákþing Garðabæjar hefst fimmtudaginn 11. nóvember 2021.   Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til alþjóðlegra stiga.  

Mótsstaður: Íþróttamiðstöð Álftaness. (Sundlaug)

Umferðatafla:
1-4. umf. fimmtudag   11. nóv. kl. 18:15
5. umf. Föstudag 12. nóv. kl. 18:15
6. umf. Laugardag 13. nóv. kl. 13:00
7. umf. Sunnudag 14. nóv. kl. 13:00

Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar mánudaginn 23. nóvember kl 19:00

Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Skákstjóri er Páll Sigurðsson. Sími 860 3120.

Tímamörk í fyrstu 4. umferðum eru 15 mínútur og 5 sek á leik. (atskák) en umferðir 5-7 eru 90 mínútur og 30 sek sem bætist við hvern leik (kappskák). Raðað er eftir kappskákstigum.

Mótið er opið öllum.

Leyfilegt er í mótinu í umferðum 1-5 að taka einu sinni hjásetu gegn hálfum vinning. Ekki er hægt að taka hjásetu eftir að pörun í umferð liggur fyrir.

Verðlaun auk verðlaunagripa:
Heildarverðlaun uþb. 70% af greiddum aðgangseyri skipt eftir Hort Kerfinu.
Verðlaun skiptast (50/30/20). Lágmarks-heildarverðlaun eru 20.000.  

Mótið er um leið skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).

Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn Taflfélags Garðabæjar eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.

Þátttökugjöld:
Félagsmenn. Fullorðnir 3000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.
Utanfélagsmenn. Fullorðnir 5000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 2000 kr
GM/WGM og IM/WIM greiða ekki þátttökugjöld.

Skráning í mótið fer fram á skak.is

Skákmeistari Garðabæjar 2019 var Páll Sigurðsson. Davíð Kjartansson var sigurvegari mótsins. Mótið féll niður árið 2020.


Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn *
Skákstig
Netfang *
Símanúmer *
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy