Næringarríkir sumarréttir - Selfoss
Við ætlum að hittast og eiga góðan seinnipart saman þar sem við lærum að búa til allskonar góða rétti sem henta frá morgni til kvölds.  Við búum til næringarríkan, einfaldan og bragðgóðan mat sem passar frábærlega vel í sumar.

Þetta námskeið hentar fyrir alla sem vilja bæta meiri næringu inn í daglegt líf og  hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í bættum lífstíl og líka lengra komnum.

Við vinnum á nokkrum stöðvum og það fara allir á allar stöðvar.  Hluti af námskeiðinu er þó sýnikennsla.   Það á eftir að koma þér á óvart hversu einfalt það getur verið að búa sjálfur til ofurhollt frá grunni.

Matseðillinn er eftirfarandi:

Möndlumjólk
Hamp Chia morgungrautur
Avakadójógúrt með fíkjumúslí
Grænn smoothie og frískandi rauðrófudrykkur sem kemur á óvart
Svartbaunaborgari með hnetusósu og marineruðum rauðlauk
Kínóasalat með möndlukurli
Heimagert frækex
Pestó og hummus
Nærandi múslíkúlur
Súkkulaðikaka sem ekki þarf að baka


Verð: 8900 kr

Þriðjudaginn 21.maí kl. 18.00-21.00

*Athugið að mörg stéttafélög styrkja félagsmenn um allt að helming af námskeiðisgjaldi.
Sign in to Google to save your progress. Learn more
Email *
Nafn:
A copy of your response will be emailed to the address you provided.
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
reCAPTCHA
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy