Sirkusskóli Húlladúllunnar í Tjarnarborg
Sirkusskóli Húlladúllunnar býður nemendur 7 ára og eldri velkomin á vorönn! Nemendur kynnast hinum heillandi heimi sirkuslistanna og læra grunntækni hinna helstu sirkuslista. Á dagskránni er húlla, jafnvægislistir, djöggl, sirkusfimleikar, atriðasmíði, kínverskir snúningsdiskar, kínverskt jójó, sviðsframkoma, trúðalæti, blómaprik og sköpunargleði. Við setjum upp sirkussýningu í Tjarnarborg í lok annar.
Kennt er mánudaga kl. 14:30 -16:00
Kennslustaður: Tjarnarborg
Verð: 20.000
Fjölskylduafsláttur: 10%
Frístundakort nýtist!
Tímabil: 18. Janúar - 17. maí.