Flugeldabingó ÍBV 2021
Flugeldabingó ÍBV 2021!

Flugeldabingóið okkar verður haldið með pompi og prakt, fimmtudaginn 30.desember kl.19:30.
Í ljósi samkomutakmarkana verður, líkt og í fyrra, haldið bingó í rafrænu formi og verður bein útsending á ÍBV TV: https://youtu.be/D0e4JLR1NdE

Spilað verður á rafrænum spjöldum, sem þátttakendur opna í snjalltæki (farsíma/spjaldtölvu) eða á fartölvu.
Spjaldið kostar 1.000 kr.- og þarf að forpanta og greiða fyrirfram.

Reikningsnúmer: 582-26-5344
Kennitala: 680197-2029
ATH, munið að senda staðfestingu á greiðslu á vilmar@ibv.is

ATH! Skráningu lýkur kl.15:00 á ”leikdegi”, fimmtudaginn 30.desember.

LEIÐBEININGAR:
Þegar búið er að panta spjald/spjöld og greiða, fær viðkomandi senda/n kóða sem hann notar til þess að skrá sig inn í bingóið í gegnum www.bingomaker.com. Þar er farið í ”Join game”, nafnið á bingóinu fundið ”Flugeldabingó ÍBV 2021” og settur inn kóðinn sem viðkomandi fékk sendan frá okkur. ATH, hver fjölskyldumeðlimur getur notað sitt spjald á sínu snjalltæki en aðeins er hægt að spila með eitt spjald á tæki.

Vinningarnir eru eins og venjulega í formi flugelda frá Björgunarfélag Vestmannaeyja og eru ekki af verri endanum. Vinningum verður keyrt heim til sigurvegara á gamlársdag 31.desember.

Flugeldabingó ÍBV hefur lengi verið vinsæll viðburður og stór þáttur hjá mörgum yfir hátíðarnar. Við voumst til þess að sem flestir taki þátt og við eigum skemmtilega kvöldstund saman!

Allar fyrirspurnir beinast til Vilmars Þórs á netfangið, vilmar@ibv.is.

Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar!


Sign in to Google to save your progress. Learn more
Email *
Fullt nafn: *
Heimilisfang: *
Sími: *
Fjöldi spjalda: *
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy