Sjö starfshópar eru um þessar mundir að vinna að tillögum inn í aðgerðaáætlun ferðamálastefnu til 2030 að skipan Lilju Alfreðsdóttur ferðamálaráðherra. Í tengslum við þá vinnu óskar starfshópur um menningartengda ferðaþjónustu eftir sjónarmiðum eða aðgerðum sem fólk vill koma á framfæri og mikilvægt er að hafa til hliðsjónar.
Þeir þættir sem starfshópnum er falið að taka til skoðunar eru:
- Menningararfur, s.s söfn, setur, sýningar, saga, fornminjar, þjóðfræði og menningarlandslag.
- Sviðslistir, s.s. tónlist, dans, ópera, leikhús
- Bókmenntir og íslensk tunga.
- Kvikmyndir og sjónvarpsefni.
- Hönnun og arkítektúr.
- Viðburðir og hátíðir, svæðisbundnar, faghátíðir, stærri stakir viðburðir.
- Myndlist, söfn, gallerí, list í opinberu rými.
- Handverk og listiðnaður.
Fyrir hönd hópsins,
Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningartengda ferðaþjónustu