Bandamenn, námskeið fyrir karla sem vilja beita sér í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Námskeiðið er hugsað fyrir karla sem vilja taka virkari þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, nánar tiltekið ofbeldi karla gegn konum, kynseginn einstaklingum og öðrum jaðarsettum hópum. Áhersla er á uppbyggilegar umræður um þennan málaflokk með það að leiðarljósi að skoða hvernig hægt er að virkja stráka og karla í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Dagskráin er fjölbreytt með margskonar fyrirlestrum, hugarflæðis-vinnu, heimildarmyndum, æfingum og umræðum. Námskeiðið er haldið af starfsfólki Stígamóta. Stígamót eru femínísk samtök og efnistök námskeiðsins eru byggð á reynslu samtakanna af baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Námskeiðið er fyrir karla 18 ára og eldri.
Ef þú ert að athuga með að fá námskeiðið fyrir vinnustaðinn þinn, vinsamlegast svarið spurningunum hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar veitir Hjálmar G. Sigmarsson ráðgjafi á Stígamótum á netfanginu:
hjalmar@stigamot.is