Græna Skóflan er viðurkenning Grænni byggðar fyrir mannvirki sem byggt hefur verið með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum.
Byggingar sem sannarlega hafa sýnt fram á umhverfisvæna byggingu að framkvæmd lokinni hljóta hærra vægi. Dómnefnd áskilur sér rétt til að kalla eftir fleiri gögnum frá þeim aðilum sem hljóta tilnefningu.