Menntastefna Húnaþings vestra
Hafin er vinna við gerð nýrrar menntastefnu fyrir Húnaþing vestra.
Hér gefst öllum íbúum tækifæri til að koma sínum hugmyndum og vangaveltum á framfæri.
Tilgangur menntastefnu er að ná víðtækri samstöðu um framtíðaráherslur í skóla- og frístundastarfi í Húnaþingi vestra og skerpa á forgangsröðun mikilvægustu umbótaverkefna.
Lögð er áhersla á að ná fram viðhorfum og hugmyndum allra hagsmunaaðila í skólastarfi við mótun menntastefnu og áhersluþátta hennar.
Menntastefnan verður unnin með sameiginlegri rýni allra íbúa Húnaþings vestra sem og öllum hagsmunaaðilum innan skóla- og frístundastarfs í Húnaþingi vestra.
Drög að menntastefnu verða unnin út frá þeim ábendingum sem berast og verður hún kynnt á heimasíðu Húnaþings vestra til athugasemda.
Hér fyrir neðan eru 6 reitir til að koma athugasemdum á framfæri. Fjöldi reitanna er hugsaður til þess að þeir sem sendi inn ábendingar geti flokkað þær niður og þannig auðveldað úrvinnslu. Ekki er nauðsynlegt að skrifa í alla reitina.