Viðeyjarmótið 2022
Taflfélag Reykjavíkur mun halda glæsilegt skákmót í Viðeyjarstofu, í samstarfi við Borgarsögusafn, laugardaginn 9. júlí næstkomandi klukkan 13.

Þetta verður annað sinn sem mótið verður haldið. Í fyrra urðu Davíð Kjartansson og Ingvar þór Jóhannesson efstir.

Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á leik) og mótið er opið öllum. Teflt verður á annarri hæð Viðeyjarstofu.

Eftir 5. umferðir verður gert hlé á taflmennsku en þess má geta að glæsileg veitingasala er í Viðeyjarstofu.

Ekkert þátttökugjald er í mótið, en það þarf að borga sig inn í ferjuna til Viðeyjar:
Gjald í ferjuna fram og til baka eru 1.950 kr. fyrir fullorðna og 975 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Þátttakendur er hvattir til að kaupa miða á elding.is.

Ferjan fer til að mynda samkæmt áætlun til Viðeyjar klukkan 12:15.

Hámarks keppendafjöldi er 50.

Verðlaun í mótinu:

15.000kr
10.000kr
5000kr

Oddastig í mótinu:

1.      Bucholz -1

2.      Bucholz

3.      Sonneborn-Berger

4.      Innbyrðis úrslit
Login ke Google untuk menyimpan progres. Pelajari lebih lanjut
Nafn *
Hraðskákstig, ef einhver (sjá hér: https://ratings.fide.com/) *
Netfang *
Kirim
Kosongkan formulir
Jangan pernah mengirimkan sandi melalui Google Formulir.
Konten ini tidak dibuat atau didukung oleh Google. Laporkan Penyalahgunaan - Persyaratan Layanan - Kebijakan Privasi