Þetta er rafrænt skráningarblað fyrir börn sem óska eftir plássi í Graduale Liberi. Opið er fyrir skráningu barna, bæði drengja og stúlkna, fædd 2014 og 2015.
Graduale Liberi æfir í safnaðarheimili Langholtskirkju á þriðjudögum kl. 16:00 - 16:45. Kórstjóri er Sunna Karen Einarsdóttir, netfang:
gradualeliberi@gmail.com.
Kennslugjald er 38.000 kr. fyrir hvora önn.
Kennslugjöldin falla undir frístundakort Reykjavíkurborgar.
Athugið einnig að áður en önnin hefst verða sendar út upplýsingar á netföng forráðamanna sem gefin eru upp hér að neðan. Eftir að kennsla hefst fara samskipti við foreldra fram í gengum Facebook hópinn Graduale Liberi 2022-2023:
www.facebook.com/groups/liberi2022