Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog
Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.
Keppnisfyrirkomulag: Riðlakeppni í einliðaleik og tveir upp úr hverjum riðli. Útsláttarkeppni í tvíliða-og tvenndarleik. Keppni hefst kl.10 á laugardag. Áætlað að undanúrslit verði kl.10 á sunnudag og úrslit kl.13:30. Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á tímasetningum.
Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 19.mars
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins,
tournamentsoftware.com.