Á fundinum verður farið yfir hvernig best er að standa að umsókn til TR um ellilífeyri, hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn, réttindi og upphæðir greiðslna. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem eru að huga að starfslokum og stefna á að hefja töku ellilífeyris á næstunni. Sérfræðingar TR verða til svara.