Skólabúðir UMFÍ á Reykjum eru ætlaðar nemendum í 7. bekk grunnskóla. Nemendur dvelja í búðunum frá mánudegi til fimmtudags.
Einungis SKÓLASTJÓRNENDUR grunnskóla geta bókað dvöl í Skólabúðum UMFÍ. Ætlast er til að uppistaða fararstjórateymis séu kennarar nemenda sem bókað er fyrir. Þegar sótt er um þarf að tilkynna hver verður aðalfararstjóri og ber ábyrgð á undirbúningi nemenda og fararstjórateymis.
Aðsókn í Skólabúðir UMFÍ er mjög góð enda vinsælt að komast í heilbrigða hvíld þar sem m.a. farsímar og tölvur trufla ekki nemendur. Fyrirhyggja er því best og æskilegt að þeir sem vilja tryggja pláss eru hvött til að sækja um þau fyrr en seinna. Við munum að sjálfsögðu reyna að uppfylla óskir allra. Hingað til hefur verið eftirsóknarvert að óska eftir dvöl í september og október. Því miður er ekki hægt að veita öllum skólum dvöl á þeim tíma.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2024.Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson. S. 861 3379, netfang
siggi@umfi.is