KAÍ dómaranámskeið í kata 2022
Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata fimmtudaginn 31.mars næstkomandi kl. 18:00-21:00, í ráðstefnusal-E í ÍSÍ Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur, svo sýnt video af kata (raundæmi), í framhaldi af því skriflegt próf og verklegt próf (notaðar verða myndbandsupptökur).

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir kata hlutann í keppnisreglum WKF 1.1.2020. Vakin er athygli á því að keppnisreglur í kata hafa breyst mjög mikið frá fyrri útgáfum af keppnisreglum.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn. Keppnisreglur og prófspurningar til grundvallar á skriflegu prófi er hægt að nálgast á vef KAÍ (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Nauðsynlegt er að skrá mætingu.
Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn *
Tölvupóstfang *
Ég mun sækja: *
Félag
Clear selection
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy