Sirkusskóli Húlladúllunnar í Tjarnarborg
Sirkusskóli Húlladúllunnar býður nemendur 8 ára og eldri velkomin á vorönn! Nemendur kynnast hinum heillandi heimi sirkuslistanna og læra grunntækni hinna helstu sirkuslista. Á dagskránni er húlla, jafnvægislistir, djöggl, sirkusfimleikar, atriðasmíði, kínverskir snúningsdiskar, kínverskt jójó, sviðsframkoma, trúðalæti, blómaprik og sköpunargleði.
Tímabil: 15. janúar - 29. apríl 2020
Kennt er miðvikudaga klukkan 15:00 -16:30
Kennslustaður: Tjarnarborg
Verð: 20.000
Fjölskylduafsláttur: 10%
Frístundakort nýtist!