Nánari upplýsingar um vinnusmiðjuna:
Vinnusmiðjan hefur það að markmiði að hvetja til þess að flíkum sé gefið lengri líftíma til að minnka kolefnisfótspr textíls. Smiðjunni er ætlað að auðga hugmyndaflug þátttakenda varðandi nýtingu á flíkunum í fataskápnum. Fjallað verður um mismunandi möguleika á áframhaldandi notkun; hvernig hægt er að breyta flík svo hún öðlist nýtt líf.
Áttu flík sem:
• Passar þér ekki lengur en þig langar að nota?
• Þú hefur keypt en lítið sem ekkert notað?
• Þig langar að „poppa upp“?
Í vinnusmiðjunni förum við saman í hugmyndaflæði varðandi hverja einustu flík. Við hjálpumst að við að finna skemmtilegar lausnir á breytingum og förum í gegnum ferlið „hugmyndaflæði – flokkun – greining – val – framkvæmd“
Þegar besta hugmyndin hefur verið mótuð, breytir þú flíkinni í einstaka „nýja, notaða flík“ sem enginn annar en þú átt. Markmiðið er að þátttakendur virki sitt eigið hugmyndaflæði og öðlist sjálfstraust til að halda áfram að endurnýta og breyta flíkum í fataskápnum í stað þess að losa sig við þær.
Vinnusmiðjan er í eitt skipti í senn og stendur yfir í 4 klst. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ljúki sínu verki á þessum tíma. Fjöldi á vinnusmiðjuna er hámark 8 manns og verð kr. 12.000 Að lokinni vinnusmiðju gefst þátttakendum tækfæri á að vera með í lokuðum hópi á Facebook þar sem skipst er á hugmyndum og gefin ráð varðandi endurnýtingar á fatnaði og fataefnum.
Þú kemur með saumavél, skæri og 1-2 flíkur sem þú vilt breyta. Ef þú átt efni, endilega taktu þau með þér.
Innifalið í verði:
• Kaffiveitingar í boði kvenfélagskvenna.
• Leiðbeiningar, utanumhald og ráðgjöf
• Efni fyrir breytingar
• Tvinni og ýmislegt smotterí
• Aðgangur að lokuðum Facebookhópi
Leiðbeinandi á námskeiðinu er: Sigríður Tryggvadóttir sem er saumakona úr Kópavogi og rekur þar Saumahorn Siggu. Hún hefur saumað í mörg ár og leggur áherslu á endurnýtingu gæðaefna og fatabreytingar. Í Saumahorninu saumar hún og selur sína eigin hönnun auk þess að bjóða uppá saumanámskeið og vinnusmiðjur. Kvenfélagskonur verða þátttakendum innan handar við saumaskapinn á námskeiðinu.
Haft verður samband við alla þátttakendur þegar nær dregur og þeir minntir á kvöldið og hvað þarf að taka með sér.
Hlökkum til að sjá þig.
Kær kveðja,
Kvenfélagskonur og Sigga